Bjarmahlíð á Akureyri

Bjarmahlíð veitir fólki sem hefur orðið fyrir ofbeldi stuðning og ráðgjöf í hlýlegu umhverfi. Þar getur þú fengið alla aðstoð á einum stað, eins og frá félagsþjónustu, lögreglu, lögfræðingi og öðrum hjálparsamtökum.

Viðtalsherbergi í Bjarmahlíð

Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis

Bjarmahlíð er upplýsingamiðstöð fyrir þolendur ofbeldis sem býður uppá áfallamiðaða ráðgjöf, stuðning og fræðslu fyrir þolendur af öllum kynjum.

Ef þú eða einhver nákominn þér hefur orðið fyrir ofbeldi getur þú talað við ráðgjafa í Bjarmahlíð. Þar er einnig hægt að koma á viðtölum við lögreglu, félagsráðgjafa og/eða lögfræðing í þægilegu umhverfi miðstöðvarinnar. Öll eru velkomin, ekki þarf tilvísun og það kostar ekkert að koma. Öll aðstoð er á þínum forsendum.

Þú getur fengið táknmálstúlkun og tungumálatúlkun ef þú þarft. Það er ekki aðgengi fyrir hjólastól þannig að ef þú notar hjólastól þarftu að taka það fram þegar þú bókar tíma. Ráðgjafinn getur þá hitt þig hjá Félagsþjónustu Akureyrarbæjar í Glerárgötu.

Bjarmahlíð er í Aðalstræti 14 á Akureyri. Þar er opið á virka daga mánudaga til fimmtudags frá 9 til 15 og föstudaga frá 9 til 13. Þú getur bókað tíma á auðveldan hátt gegnum bókunarkerfið Noona. Ef þú kemst ekki á staðinn er hægt að bóka síma- eða fjarviðtal. Þú getur sent tölvupóst á bjarmahlid@bjarmahlid.is eða hringt í síma 551 2520 (opinn 9-14:30 mán- fim. og 9-13 á föstudögum) fyrir nánari upplýsingar.

Bjarmahlíð á Akureyri hjálpar öllu fólki sem hefur orðið fyrir ofbeldi.

Þjónustan í Bjarmahlíð

Bjarmahlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Norðurlandi, óháð kyni. Þar er hægt að fá hjálp.

Lögreglan í Bjarmahlíð

Þegar lögreglan kemur í Bjarmahlíð og hittir þolendur er það fyrst og fremst til að veita þeim stuðning, öryggi og upplýsingar.

Aðstoð í boði

Sjá alla aðstoð

Aflið á Akureyri

Aflið hjálpar fólki sem hefur orðið fyrir hvers konar ofbeldi.

Útsýni af Akureyri.

Kvennaathvarfið á Akureyri

Kvennaathvarfið býður upp á ráðgjöf og húsnæði fyrir konur sem hafa orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi.

Neyðarmóttaka á Akureyri vegna kynferðisofbeldis

Neyðarmóttakan á sjúkrahúsinu á Akureyri tekur á móti öllum þeim sem hafa orðið fyrir nauðgun, tilraun til nauðgunar eða öðru kynferðisofbeldi.

Líkamlegt ofbeldi

Líkamlegt ofbeldi er það þegar einhver meiðir þig, til dæmis klípur, sparkar, hrindir eða lemur þig. Hótun eða ógnun um að meiða er einnig líkamlegt ofbeldi.

Manneskja í fjötrum. Hún er með lokuð augu og er leið á svipinn og heldur þétt utan um sig. Rauður þykkur borði er vafinn utan um hana.

Ofbeldi gegn fötluðu fólki

Fatlaðir er líklegra til að verða fyrir ofbeldi en ófatlaðir. Ofbeldi er það þegar einhver gerir eitthvað sem meiðir þig eða lætur þér líða illa.

Manneskja heldur á regnhlíf yfir höfði annarar manneskju sem er greinilega leið. Regnhlífin stoppar rigninguna sem kemur úr skýi fyrir ofan höfuð leiðu manneskjunnar.