
Neyðarmóttaka á Akureyri vegna kynferðisofbeldis
Neyðarmóttakan á sjúkrahúsinu á Akureyri tekur á móti öllum þeim sem hafa orðið fyrir nauðgun, tilraun til nauðgunar eða öðru kynferðisofbeldi.

Stuðningur og ráðgjöf vegna kynferðisofbeldis
Á Norðurlandi er neyðarmóttaka fyrir þolendur kynferðisofbeldis á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þar er opið allan sólarhringinn, allt árið. Það kostar ekkert að fara þangað. Þú færð aðstoð, alveg sama hvaðan þú kemur og hvar þú býrð. Það getur verið gott að koma með einhverjum sem þú treystir.
Á neyðarmóttökunni vinna hjúkrunarfræðingar, félagsfræðingar, sálfræðingar og læknar sem geta hjálpað þér andlega og líkamlega. Í skoðuninni er safnað sakargögnum sem hægt er að nýta ef þú ákveður að kæra. Til að auka líkurnar á að finna sakargögn er mikilvægt að koma eins fljótt og hægt er og ekki þvo þér eða fötin þín áður. Það er aldrei nein krafa um ákæru.
Þú getur annað hvort komið beint eða hringt í síma 463 0800.
Símanúmer
Heimilisfang
Eyrarlandsvegur, 600 Akureyri. Skoða á kortiAðgengi
Gott aðgengi fyrir hjólastóla.Tungumál
Tungumála- og táknmálstúlkun.
Neyðarmóttakan á Akureyri tekur vel á móti þér allan sólarhringinn.


