Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis

Ef þú eða einhver sem þú þekkir hefur orðið fyrir ofbeldi getur þú talað við ráðgjafa í Bjarmahlíð óháð kyni, uppruna eða félagslegri stöðu. Þar getur þú líka talað við lögreglu og lögfræðinga í þægilegu umhverfi. Öll eru velkomin og það kostar ekkert að koma. Öll aðstoð er á þínum forsendum.

Bjarmahlíð býður líka upp á ráðgjöf fyrir 16-18 ára og fræðslu og hópastarf.

Þú getur fengið táknmálstúlkun og tungumálatúlkun ef þú þarft. Það er ekki aðgengi fyrir hjólastól þannig að ef þú notar hjólastól þarftu að taka það fram þegar þú bókar tíma. Ráðgjafinn getur þá hitt þig hjá Félagsþjónustu Akureyrarbæjar í Glerárgötu.

Bjarmahlíð er í Aðalstræti 14 á Akureyri. Þar er opið á virkum dögum frá 10 til 17. Best er að bóka tíma gegnum vefsíðuna þeirra eða hringja í síma 551 2520 (sem er opinn 9-14). Það er líka hægt að hitta ráðgjafa á fjarfundi. Þú getur líka sent þeim tölvupóst á bjarmahlid@bjarmahlid.is.

Bjarmahlíð á Akureyri hjálpar öllu fólki sem hefur orðið fyrir ofbeldi.

Þjónustan í Bjarmahlíð

Bjarmahlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Norðurlandi, óháð kyni. Þar er hægt að fá hjálp.

Lögreglan í Bjarmahlíð

Þegar lögreglan kemur í Bjarmahlíð og hittir þolendur er það fyrst og fremst til að veita þeim stuðning, öryggi og upplýsingar.

Aðstoð í boði

Sjá alla aðstoð
Hús Aflins á Akureyri

Aflið á Akureyri

Aflið hjálpar fólki sem hefur orðið fyrir hvers konar ofbeldi.

Kvennaathvarfið á Akureyri

Kvennaathvarfið býður upp á ráðgjöf og húsnæði fyrir allar konur sem hafa orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi.

Neyðarmóttaka á Akureyri vegna kynferðisofbeldis

Neyðarmóttakan á sjúkrahúsinu á Akureyri tekur á móti öllum þeim sem hafa orðið fyrir nauðgun, tilraun til nauðgunar eða öðru kynferðisofbeldi.

Líkamlegt ofbeldi

Líkamlegt ofbeldi er það þegar einhver meiðir þig, til dæmis klípur, sparkar, hrindir eða lemur þig. Hótun eða ógnun um að meiða er einnig líkamlegt ofbeldi.

Manneskja í fjötrum. Hún er með lokuð augu og er leið á svipinn og heldur þétt utan um sig. Rauður þykkur borði er vafinn utan um hana.

Ofbeldi gegn fötluðu fólki

Fatlaðir er líklegra til að verða fyrir ofbeldi en ófatlaðir. Ofbeldi er það þegar einhver gerir eitthvað sem meiðir þig eða lætur þér líða illa.

Manneskja heldur á regnhlíf yfir höfði annarar manneskju sem er greinilega leið. Regnhlífin stoppar rigninguna sem kemur úr skýi fyrir ofan höfuð leiðu manneskjunnar.