
Heimilisofbeldi
Í kjölfar atvika er hægt að benda nemendum og/eða forsjáaraðilum á úrræði sem henta.

Tilkynningaskylda
Öllum er skylt að tilkynna til barnaverndarþjónustu ef þeir hafa ástæðu til að ætla að barn:
- búi við óviðunandi uppeldisaðstæður,
- verði fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi eða
- stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu.
Barnaverndarlög nr. 80/2002 16. gr.
Leiðarvísir fyrir börn sem verða fyrir heimilisofbeldi
Merki um að það þurfi að tala við Barnavernd eða Lögreglu
Ef eitthvað af eftirfarandi á við um barn eða ungmennið sem um ræðir:
- Grunur er um óviðeigandi uppeldisaðstæður
- Barn stofnar sér/öðrum í hættu
- Barn hefur sýnt langvarandi vanlíðan
- Tengsl við þann sem beitti ofbeldi (heimilisofbeldi)
- Barn í neyslu/undir áhrifum
- Fyrri saga
- Vopnaburður fyrir eigið öryggi
Önnur flæðirit
Verkferlar og viðbragðsáætlanir
- Grunnskólar: Viðbragðsáætlun og verklag þegar grunur vaknar um vanrækslu, ofbeldi og/eða áhættuhegðun barna
- Framhaldsskólar: Leiðarvísir um viðbrögð við EKKO málum nemenda
- Íþrótta- og æskulýðsstarf: Verkfærakista samskiptaráðgjafa
- Grunn- og framhaldsskólar: Verklagsreglur um tilkynningaskyldu til barnaverndar
Farsæld barna
Ef grunur er á að barn hafi orðið fyrir ofbeldi þá skal leita til tengiliðar farsældar. Tengiliðurinn hefur þekkinguna til að vera barninu innan handar. Tengiliður barns í skóla er starfsmaður skólans.
Símanúmer hjá lögreglu og barnavernd
Skráið hjá ykkur símanúmer lögreglu og barnaverndar í ykkar umdæmi.
Vefur lögreglunnar með upplýsingar fyrir umdæmin
Vefur Barna- og fjölskyldustofu með upplýsingar um barnavernd hjá öllum sveitarfélögum
Alltaf er hægt að ná sambandi við lögreglu og bakvaktasíma barnaverndar í gegnum 112. Bakvaktarsími barnaverndar er bara virkjaður utan opnunartíma barnaverndar.
Áfallaviðbrögð
Þegar búið er að koma málum í farveg er mikilvægt að hjálpa þeim sem þurfa að vinna úr tilfinningunum sem eftir sitja
Úrræði fyrir nemendur










