
Kynferðisofbeldi
Í kjölfar atvika er hægt að benda nemendum og/eða forsjáaraðilum á úrræði sem henta.

Tilkynningaskylda til barnaverndar
Öllum er skylt að tilkynna til barnaverndarþjónustu ef þeir hafa ástæðu til að ætla að barn:
- búi við óviðunandi uppeldisaðstæður,
- verði fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi eða
- stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu.
Barnaverndarlög nr. 80/2002 16. gr.
Merki um að það þurfi að tala við Barnavernd eða Lögreglu
Ef eitthvað af eftirfarandi á við um barn eða ungmennið sem um ræðir:
- Grunur er um óviðeigandi uppeldisaðstæður
- Barn stofnar sér/öðrum í hættu
- Barn hefur sýnt langvarandi vanlíðan
- Tengsl (heimilisofbeldi)
- Barn í neyslu/undir áhrifum
- Fyrri saga
- Vopnaburður fyrir eigið öryggi
Verklag og viðbragðsáætlanir
- Grunnskólar og frístundastarf: Viðbragðsferill skóla og frístundasviða vegna kynferðislegu áreitni og kynferðislegu ofbeldi
- Framhaldsskólar: Leiðarvísir um viðbrögð við EKKO málum nemenda
- Íþrótta- og æskulýðsstarf: Verkfærakista samskiptaráðgjafa
- Grunn- og framhaldsskólar: Verklagsreglur um tilkynningaskyldu til barnaverndar
Símanúmer hjá lögreglu og barnavernd
Skráið hjá ykkur símanúmer lögreglu og barnaverndar í ykkar umdæmi.
Vefur lögreglunnar með upplýsingar fyrir umdæmin
Vefur Barna- og fjölskyldustofu með upplýsingar um barnavernd hjá öllum sveitarfélögum
Alltaf er hægt að ná sambandi við lögreglu og bakvaktasíma barnaverndar í gegnum 112. Bakvaktarsími barnaverndar er bara virkjaður utan opnunartíma barnaverndar.
Hvernig fara kynferðisofbeldismál í gegnum kerfið?
Kynferðisofbeldi
Kynferðisofbeldi er það þegar einhver gerir eitthvað kynferðislegt við þig, eða fær þig til að gera eitthvað kynferðislegt, sem þú vilt ekki. Kynferðisleg áreitni er þegar einhver fer yfir mörkin þín kynferðislega og er líka ofbeldi.
Undir þetta fellur nauðgun, kynferðisleg áreitni og að deila nektarmyndum.
Efni um kynferðisofbeldi sérstaklega sniðið að börnum og ungmennum:
Önnur flæðirit
Áfallaviðbrögð
Þegar búið er að koma málinu í farveg er mikilvægt að hjálpa ungmenni við að vinna úr þeim erfiðu tilfinningum sem eftir sitja.
Úrræði fyrir þolendur kynferðisofbeldis







