Ef þú átt í vandræðum með að ná sambandi við 112, smelltu þá á netspjall eða hringdu í 599-0112. Aðrar leiðir til að ná sambandi

Kynlífskúgun (sextortion)

Kynlífskúgun, stundum kallað sæmdarkúgun, er þegar einhver vill að þú gerir eitthvað fyrir sig og hótar að sýna öðrum eitthvað sem þú vilt ekki að aðrir sjái ef hann fær ekki það sem hann vill.

Að kúga fólk til að gera eitthvað, til dæmis senda sér nektarmyndir eða peninga er ólöglegt.

Að dreifa nektarmyndum af fólki sem ekki hefur gefið til þess leyfi er líka ólöglegt og kallast stafrænt kynferðisofbeldi.

Ef þú eða einhver sem þú þekkir eru í samskiptum við aðila sem er að hóta þér þá mælum við með að:

  • Vista samskiptin og allar upplýsingar sem ykkur dettur í hug (svo sem vinalista viðkomandi og notendanafn).
  • Hætta samskiptunum.
  • Fá stuðning frá fagaðilum. Fólk sem verður fyrir kynlífskúgun eða ástarsvikum getur upplifað mikla vanlíðan, niðurlægingu, skömm og áhyggjur.
  • Hafa samband við lögregluna. Lögreglan er í alþjóðlegu samstarfi sem þýðir að þó að sá sem þú ert í samskiptum við sé erlendis eða felur sig á bakvið óþekkt notendanafn þá geta þau samt fundið hver hann er.
  • Ef viðkomandi hefur undir höndum nektarmyndir eða annað myndefni sem þið viljið ekki að sé í dreifingu er hægt að takmarka eða stoppa dreifinguna.

Úrræði

Stígamót

Stígamót hjálpa öllum (konum, körlum og kynsegin fólki) sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi.

Viðtalsherbergi í Bjarkarhlíð.

Bjarkarhlíð

Bjarkarhlíð í Reykjavík veitir fólki sem hefur orðið fyrir ofbeldi stuðning og ráðgjöf í hlýlegu umhverfi. Þar geturðu fengið alla aðstoð á einum stað, eins og frá lögreglu, lögfræðingi og öðrum hjálparsamtökum.

Lögreglan

Lögreglan hjálpar fólki sem verður fyrir ofbeldi. Ofbeldi í nánum samböndum er litið mjög alvarlegum augum hjá lögreglunni.

Viðtalsherbergi í Bjarmahlíð

Bjarmahlíð á Akureyri

Bjarmahlíð veitir fólki sem hefur orðið fyrir ofbeldi stuðning og ráðgjöf í hlýlegu umhverfi. Þar getur þú fengið alla aðstoð á einum stað, eins og frá félagsþjónustu, lögreglu, lögfræðingi og öðrum hjálparsamtökum.

Myndin sýnir bjarta setustofu þar sem er blár sófi hægra megin upp við vegg.  Sófinn er með tveimur gulum púðum fyrir framan lágt viðar sófaborð. Hinu megin við borðið eru tveir hvítir stólar, yfir annan þeirra hefur verið lagt samanbrotið teppi.  Fyrir aftan stólana má sjá bókahillu með ýmsum munum í. Á veggnum gagnstætt hurðinni er hægra megin gluggi með bláum gluggatjöldum. Vinstra megin eru hvítir upphengdir eldhússkápar.

Suðurhlíð

Suðurhlíð er miðstöð í Reykjanesbæ fyrir þolendur ofbeldis og býður upp á ráðgjöf og upplýsingar fyrir fólk sem hefur verið beitt ofbeldi.

Sigurhæðir á Selfossi

Sigurhæðir eru þjónusta á Suðurlandi fyrir konur sem hafa orðið fyrir ofbeldi. Þar færðu ókeypis ráðgjöf, stuðning og meðferð á þínum forsendum.

Tæling

Þegar eldri manneskja tælir aðra manneskju til kynferðislegra athafna með blekkingu eða gjöfum kallast það tæling.

Ástarsvik

Ástarsvik er þegar einhver myndar ástar- eða vinatengsl við þig til þess að geta stolið af þér peningum eða persónuupplýsingum.

Stafrænt kynferðisofbeldi

Það þarf alltaf samþykki til að deila kynferðislegu efni af öðrum