Hvað er nauðungarstjórnun?

Nauðungarstjórnun er þegar manneskja í nánu sambandi tekur yfir stjórn á lífi annarar manneskju gegn vilja hennar. Til dæmis með því að stýra aðgengi að samskiptum við vini og fjölskyldu, fjármálum eða samfélagsmiðlum. Stundum er engu líkamlegu ofbeldi beitt - þessvegna þarf að skða hvernig manneskja stjórnar og beitir andlegu ofbeldi. Aðferðirnar eru:

  • einangrun
  • smánun
  • gaslýsing
  • ofurstjórnun í daglegu lífi

Birtingarmyndir nauðungarstjórnunar

Nauðungarstjórnun (e. coercive control) er regnhlífarhugtak yfir margar birtingarmyndir ofbeldishegðunar. Gerandi býr til heim þar sem þolandinn er stöðugt undir smásjá. Öll hegðun er gagnrýnd og metin á grundvelli reglna sem breytast stöðugt.

  • Veldur þrúgandi andrúmslofti á heimilinu.
  • Öskrar á þig eða hótar þér eða öðrum á heimilinu.
  • Lýgur til að rugla þig í ríminu, einnig kallað gaslýsing.
  • Gagnrýnir oft þig, fjölskyldu þína eða vini eða heldur þig frá þeim.
  • Reynir að stjórna með fýlu, þögn eða reiðist snögglega.
  • Stýrir fjármálum þínum eða gerir lítið úr getu þinni til að fara með peninga.
  • Áreitir þig stanslaust með skilaboðum, símhringingum eða heimsóknum.
  • Lætur þér líða eins og þú getir ekki hætt í þessu sambandi.

Birtingarmyndirnar geta líka verið óeðlileg hegðun á netinu, til dæmis ef manneskja hefur sterkar skoðanir og vill stýra:

  • hvað þú birtir á samfélagsmiðlum.
  • Hvað þú skoðar á samfélagsmiðlum og hve lengi.
  • Hvaða öpp þú notar í símanum þínum.
  • Skráningu um tíðarhringinn þinn í appinu og annarra heilsufarsupplýsinga.
  • Setur staðsetningarapp í símann þinn (með eða án þinnar vitundar).
  • Aðgengi þitt að fjármunum þínum.

Þekkir þú birtingarmyndir ofbeldis?

Skoða fleiri dæmi
Manneskja með áhyggjusvip horfir út í buskann. Tvö stór spurningamerki svífa í kringum hana.

Jónína

Jónína hefur verið í sambandi við Pálma í átta mánuði. Sambandið þróaðist hratt en smátt og smátt hefur hún misst sambandið við fjölskylduna sína og vini. Henni finnst það leitt en en það skipti meira máli að sjá Pálma taka börnunum hennar vel. Pálmi sér um öll fjármál fyrir þau, enda er hann pottþéttur og alltaf með stjórn á hlutunum. Reyndar skammar Pálmi hana fyrir að eyða of miklum tíma og peningum í innkaup fyrir fjölskylduna og vill alltaf vita hvar hún er. Allt í einu tekur hún eftir að elsta barnið hennar forðast Pálma og vill ekki segja henni af hverju. Pálmi hafði hótað að drepa gæludýrið þeirra ef barnið gerði ekki eins og hann sagði.

Er þetta ofbeldi?

4 - Hvað er til ráða?

Þú átt rétt á að ákveða hvað þú vilt og vilt ekki í þínu lífi. Það er alltaf betra að segja einhverjum frá hvernig þér líður. Ef þú vilt fá aðstoð getur þú haft samband við Bjarkarhlíð í Reykjavík eða Bjarmahlíð á Akureyri sem sérhæfa sig í stuðningi fyrir fullorðna við hvers konar ofbeldi. Engu máli skiptir hversu langt er síðan ofbeldið átti sér stað.

Börn og fullorðnir geta alltaf talað við einhvern hjá 1717 (hjálparsíma Rauða krossins) eða haft samband við 112 gegnum síma eða netspjall.

Fyrir aðstandendur

Nauðungarstjórnun getur verið ósýnileg fyrir aðstandendum. Mikilvægt er að álasa sér ekki, heldur gera eitthvað í því sem allra fyrst.

Gott er að stíga út fyrir og skoða heildarmyndina.

Hefur manneskja hafi breyst mikið á stuttum tíma? Hefur hún tekið stórar ákvarðanir sem eru ólíkar henni eða fjarlægst fjölskyldu og vini? Afþakkar hún aðstoð eða afsakar hún skrýtna hegðun geranda? Það er eðlilegt að vera hrædd við afleiðingar ef sagt er frá ofbeldi og því ólíklegt að manneskjan vilji segja frá í fyrstu.

Við getum alltaf hjálpað til á einhvern hátt

Við getum látið manneskjuna vita að við erum til staðar. Það er gríðarlega mikilvægt að vera áfram til staðar bæði fyrir þolandann og börn. Ef nálgunarbann er brotið, þarf að bregðast við því strax. Ef við gerum ekkert í málinu, þá heldur ástandið áfram að vera eins.

Aðstoð í boði

Bjarmahlíð á Akureyri

Bjarmahlíð veitir fólki sem hefur orðið fyrir ofbeldi stuðning og ráðgjöf í hlýlegu umhverfi. Þar geturðu fengið alla aðstoð á einum stað, eins og frá lögreglu, lögfræðingi og öðrum hjálparsamtökum.

Sigurhæðir á Selfossi

Sigurhæðir eru þjónusta á Suðurlandi við konur sem hafa orðið fyrir ofbeldi. Þar færðu samhæfða ráðgjöf, stuðning og meðferð á þínum forsendum.

Hús Kvennaráðgjafarinnar á Hallveigarstöðum

Kvennaráðgjöfin

Kvennaráðgjöfin er ókeypis lögfræði- og félagsráðgjöf fyrir konur.

Bjarkarhlíð

Bjarkarhlíð veitir fólki sem hefur orðið fyrir ofbeldi stuðning og ráðgjöf í hlýlegu umhverfi. Þar geturðu fengið alla aðstoð á einum stað, eins og frá lögreglu, lögfræðingi og öðrum hjálparsamtökum.

Manneskja leiðir aðra manneskju í gegnum stóra gátt inn í bjartan himinn.

Félagsþjónusta sveitar­félaganna

Félags- og velferðarþjónustur sveitarfélaganna veita fjölbreyttan stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. Þar er hægt að fá stuðning vegna ofbeldis.

Nauðungarstjórnun

Nauðungarstjórnun er aðferð til að ná stjórn á manneskju í nánu sambandi. Sá sem býr við nauðungarstjórnun er einskonar gísl í sínu eigin lífi.

Lögreglustjarnan og nafn lögreglu vélritað með hvítum stöfum

Stafrænt ofbeldi

Stafrænt ofbeldi, eða netofbeldi, er það þegar einhver notar tæki eða tækni til að fylgjast með þér, ógna þér, áreita þig eða niðurlægja þig

Manneskja horfir á farsímann sinn sem er opinn og virðist sýna skilaboð

9 ástæður fyrir því að fólk hættir ekki í ofbeldissambandi

Fólk þekkir oft ekki birtingarmyndir ofbeldis og fattar hreinlega ekki að það sé beitt ofbeldi í sambandinu og leitar því ekki eftir hjálp. Hér eru 9 ástæður.

Manneskja styður höndum á gagnaugun. Henni líður greinilega illa. Eldingar eru teiknaðar hjá höfðinu.