Það má ekki beita þig eða aðra ofbeldi
Það getur verið erfitt að trúa því að einhver vilji meiða eða hræða aðra. En fólk gerir stundum svoleiðis til að stjórna öðrum. Það kallast ofbeldi. Það er aldrei í lagi að beita ofbeldi.
Það eru til margar gerðir af ofbeldi.
- Andlegt ofbeldi er þegar einhver notar ljót orð og hótanir til að láta öðrum líða illa.
- Líkamlegt ofbeldi er þegar einhver meiðir annan með því að slá, sparka eða henda hlutum í aðra.
- Kynferðislegt ofbeldi er það þegar einhver vill snerta mann eða fá mann til snerta sig og að það sé leyndarmál.
- Stafrænt ofbeldi, eða netofbeldi, er þegar einhver beitir ofbeldi á netinu, til dæmis með ljótum kommentum eða sendir þér nektarmyndir eða biður þig um að senda sér nektarmyndir af þér.
Það er líka ofbeldi að þurfa að horfa á einhvern sem manni þykir vænt um verða fyrir ofbeldi.
Það er margt fólk sem getur hjálpað þeim sem verða fyrir ofbeldi ef það veit hvað er að gerast. Fólk sem meiðir og særir getur líka fengið hjálp. Það er ekki endilega tekið í burtu heldur getur það fengið hjálp til að breyta hegðun sinni.
Ef þú eða einhver sem þú þekkir verður fyrir ofbeldi er best að segja einhverjum fullorðnum sem þú treystir frá. Það getur verið einhver í fjölskyldunni þinni, kennari í skólanum eða foreldrar vina þinna. Ef það er enginn sem þér finnst þægilegt að tala við geturðu talað við barnanúmerið 112.